Andrea Gylfadóttir
Mynd: Axel Jón Andrea Gylfadóttir er ein flottasta og dáðasta söngkona okkar Íslendinga og hefur komið víða við á tónlistarsviðinu. Hún hefur leikið með fjölda hljómsveita og má nefna til dæmis Grafík, Vini Dóra, Blúsmenn Andreu, Borgardætur, Todmobile og ýmsar jazzhljómsveitir. Á JEA 2007 fáum við að hlusta á hana í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði syngja gospel. Andrea ætlar einnig að stoppa við í tjaldinu og taka lagið með Riotinu. Það er ekki leiðinlegt að geta boðið ykkur uppá svona stórsöngkonu eins og Andrea sannarlega er og verður frábært að fá að hlusta á þær stöllur Deitru og Andreu laugardaginn 30. júní í Kirkju-og menningarmiðstöðinni á Eskifirði kl 14:00 og á Afmælistónleikunum í tjaldinu.
|
|---|