Flís Árið 1998 hittust Flísmenn í FÍH tónlistarskólanum. Þá var Helgi nýfluttur í bæinn að norðan til að læra á trommur og að "pípa". Valdi Kolli var dauðarokkari með sítt hár og var að læra á rafbassa og kontrabassa og Davíð frá Akranesi var meðlimur í Stjórninni, með súkkó-klippingu og spilaði á sax og ýmiss konar hljómborð. Á einhvern furðulegann máta smullu þeir allir strax saman stuttu eftir það varð Flís til. Til að byrja með var hefðbundinn jazz aðalviðfangsefni vinanna. Fljótlega komust þeir að því að hann nægði þeim engan veginn sem tjáningarform og því leiddust þeir út í alls kyns tónlist sem átti afar fátt sameiginlegt með hefðbundnum djassi. Tríóð hefur leikið inn á auglýsingar og bíómyndir. Auk djasstónistarinnar hefur tríóið troðið upp eitt sér eða í samvinnu við aðra í alls kyns tónlist. Árið 2005 var gróskumikið fyrir Flísmenn því þeir gáfu út 3 plötur í sínu nafni auk þess að sjá um útsetningar og undirleik á tveimur plötum þ.e. "Í sólgulu húsi" með Ingibjörgu Þorbegs og "Kata rokkar" með tónsmíðum Theódórs Einarssonar. Þetta stórskemmtilega trío verður á JEA 2007 og spilar í Egilsbúð, Neskaupstað fimmmtudaginn 28. júní. Þú lætur þennan viðburð ekki fram hjá þér fara! Davíð Þór Jónsson - píanó Vladimar Kolbeinn Sigurjónsson - bassi Helgi Svavar Helgason - trommur
|
|---|