Hvernig og hvar

Til og frá

Það er auðveldast að fara inná www.flugfelag.is og bóka flug á netinu og fljúga til Egilsstaða.  Það tekur um 7-8 tíma að keyra frá höfuðborginni til Egilsstaða.  Frá Egilsstöðum eru 70 km til Neskaupstaðar og um 30 km til Seyðisfjarðar.  Það eru rútuferðir reglulega á milli þessara staða.               

Hvað kostar inn á tónleikana og hvar fæ ég miða?

Miðaverðaverð á tónleikana er kr. 1500.- fyrir fimmtudag og föstudag en kr. 2000.- á laugardag.  Einnig er hægt að kaupa passa á alla tónleika hátíðarinnar á kr. 4000.-

Þú getur sent tölvupóst á jonhilmar@hive.is og fengið senda miða.  Ef um stóra hópa er að ræða er það rætt undir fjögur:

Hvar eru Eiðar?

Föstudagstónleikarnir verða á Eiðum sem er um 14km frá Egilsstöðum.  Keyrt er í áttina að Seyðisfirði frá Egilsstöðum.

Hvar fæ ég gistingu?

Það er hægt að kaupa gistingu víðsvegar um Austurland.  Á Seyðisfirði er Hótel Aldan,  á Egilsstöðum Hótel Hérað og í Neskaupstað Hótel Edda.  Einnig eru fleiri staðir sem völ er á og hægt að sjá betur á www.east.is