Hvernig og hvar

Til og frá

Það er auðveldast að fara inná www.flugfelag.is og bóka flug á netinu og fljúga til Egilsstaða.  Það tekur um 7-8 tíma að keyra frá höfuðborginni til Egilsstaða.  Frá Egilsstöðum eru 70 km til Neskaupstaðar og um 30 km til Seyðisfjarðar.  Það eru rútuferðir reglulega á milli þessara staða.               

Hvar fæ ég gistingu?

Það er hægt að kaupa gistingu víðsvegar um Austurland.  Á Seyðisfirði er Hótel Aldan,  á Egilsstöðum Hótel Hérað og í Neskaupstað Hótel Edda.  Einnig eru fleiri staðir sem völ er á og hægt að sjá betur á www.east.is



Þú sendir póst á jeajazzfest@gmail.com, greiðir miðann og færð hann afhentan á tónleikastað eða sendann heim til þín.