“Við félagarnir, ég og Steini Steingríms píanisti úr KK sextett vorum á rölti á góðviðrisdegi á Egisstöðum síðsumars 1987. Gellur þá í Steina “Hér ætti að vera djass, hér er svo fallegt” Nú ég tók hann bara á orðinu og fyrsta Jasshátíð Egilsstaða steig af stokkunum á Jónsmessu 23. júní 1988, ári síðar.”
Svona byrjaði þetta allt saman að sögn Árna Ísleifs en hann er stofnandi og guðfaðir Jasshátíðar Egilsstaða á Austurlandi. Árni er sá sem mestan heiður á af því að við erum að halda uppá 20. hátíðina 2007 með hjálp góðra félaga hans en nokkrir einstaklingar voru Árna innan handar með skipulagningu og val á listamönnum.
“Á meðan ég stóð fyrir hátíðinni var Friðrik Theodórsson alltaf kynnir að undanskildum 3 hátíðum. Vernharður Linnet var mér svo innanhandar með val á listamönnum” segir Árni. Dagsskrá fyrstu Jasshátíðarinnar leit svona út:
< 1 2 3 4 5 >