Ásgeir Ásgeirsson
- Lester Young Tribute
Ásgeir byrjaði að spila á gítar á unglingsaldri undir áhrifum frá rokk og blústónlist, Ásgeir lærði á klassískan gítar í 4 ár áður en hann hóf nám við tónlistarskóla FÍH þaðan sem hann útskrifaðist frá jazzdeild vorið 1999. Á þessum arum spilaði Ásgeir með fjöldanum öllum af hljómsveitum m.a. Sóldögg og Sælgætisgerðinni.
Ásgeir hélt til Amsterdam um haustið 1999 þar sem hann nam við Conservatorium Van Amsterdam undir handleiðslu Henk Sprenger í tvö ár. Á Íslandi hefur Ásgeir leikið flesta tegundir tónlistar: rokk, fönk, blús og jazz, komið fram í útvarpi og sjónvarpi verið, tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna bæði sem gítarleikari og fyrir lagasmíðar sínar. Ásgeir hefur m.a. flutt inn tónlistarmenn á Jasshátíð Reykjavíkur t.d. Seamus Blake, Ingrid Jensen og Chris Cheek, sem spilar á fyrstu sólóplötu Ásgeirs sem kemur út í September 2006. Árið 2005 kom Ásgeir fram á jasshátíð Kaupmannahafnar með Oktett Ragnheiðar Gröndal. Árið 2006 tók Ásgeir þátt í uppsetningu Borgarleikhussins á söngleiknum Carmen sem sýndur var á vormánuðum 2006. Ásgeir er nú kennari við Tónlistarskóla FÍH og mjög virkur hljóðfæraleikari og tónskáld.
Ásgeir er einn af fáum íslenskum tónlistarmönnum sem ekki hefur áður spilað á Jasshátíð Egilsstaða á Austurlandi en nú verður bætt úr því.
Kvartettinn hans Ásgeirs leikur nokkrar af perlum djassbókmenntanna frá 4. og 5. áratugnum með sérstaka áherslu á lög sem saxófónleikarinn Lester Young gerði ódauðleg í tjaldinu laugardaginn 30 júní á afmælistóleikum JEA.
James Carter
Deitra Farr
The Riot
Jagúar
Narodna Musika
The Pichfork Rebellion
Hrafnaspark
Sean Walsh Band
Andrea Gylfadóttir
Flís
Blúsbrot Garðars Harðar
|