Draumar

Draumar


Stundum fæðast klikkaðar hugmyndir sem aldrei verða að veruleika. Þetta er ekki ein slík. Draumar eru tón- og dansverk eftir þau Einar Braga(tónlist) og Irmu Gunnarsdóttur(dans) og mun frumfluttingur á þessu verki verða á opnunarhátíð JEA 2008. Þessi einstaki listviðburður mun fara fram djúpt inni í fjalli nánar tiltekið í aðkomugöngum stöðvarhúss Fljótsdalsvirkunnar. Tónlistin í þessu verki er komin út á geisladisk og eru margir frábærir tónlistarmenn sem koma að fluttningi hennar en hljómsveitina skipa:

Gunnlaugur Briem: trommur
Jóhann Ásmundsson: bassi
Einar Bragi Bragason:
sax og flautur
Ólafur Schram: piano
Jón Hilmar Kárason: gítar


Irma Gunnarsdóttir samdi dansinn og sér um sjónræna hlið verksins. Dansararnir í verkinu eru frábærir og hafa látið mikið að sér kveða á þeim vettfangi:
Guðrún Óskarsdóttir
Katla Þórarinsdóttir
Inga Maren Rúnarsdóttir
Þórdís Schram

Þetta er glæsilegt verk sem verður flutt við einstakar aðstæður og þú mátt bara ekki láta aðra segja þér frá þessu, þú verður bara að mæta. Aðkomugöng stöðvarhúss Fljótsdalsvirkunnar eru rétt hjá Skriðuklaustri og þar verðum við Miðvikudagskvöldið 25 júní.

 

Larry Carlton

Laurie Wheeler

Beady Belle

Bloodgroup

Draumar

Bláir Skuggar