Beady Belle

Beady

Ég hef aldrei orðið jafn agndofa og þegar ég sá Beady Belle á Sortland Jazzweeked 2005. Ég (Jón Hilmar) og Einar Bragi sáum hana þá og höfum reynt að fá hana á JEA síðan til þess að þið getið upplifað þessa frábæru hljómsveit sjálf. Þau Beate S. Lech söngkona og Marius Reksjo bassaleikari stofnuðu hljómsveitina og semja flest lög hennar. Tónlistin sem þau flytja er blanda af öllu því besta sem maður vill fá úr hverri tónlistarstefnu. R&B, jazz, pop, country, dance, blues og svona gæti ég haldið áfram. Það má segja að hljómsveitin hafi tvö andlit eitt á plötu og annað live. Ólík andlit en bæið alveg frábær. Ég get ekki beðið að sjá þau í sumar! Hljómsveitina skipa frábærir tónlistarmenn:

Erik Holm: trommur
Jørn Øien: hljómborð
Marius Reksjø: raf og kontrabassa
Tommy Kristiansen: gítar
Beate S. Lech: söngur

Ég vil síður að þú missir af þessari hljómsveit og vertu því komin á Seyðisfjörð laugardaginn 28. Júní í Herðubreið.

www.beadybelle.com

www.myspace.com/beadymusic

 

 

Larry Carlton

Laurie Wheeler

Beady Belle

Bloodgroup

Draumar

Bláir Skuggar