27.06.06 Hátíðinni lauk með glæsibrag á laugardagskvöld. Það var gaman að sjá hvað margir komu og sáu þessa frábæru tónleika með Steinar Kjeldsen Kvartett og Mezzoforte. Það var líka jafn leiðinlegt fyrir þá sem misstu af þeim. En nóg af því. Steinar Kjeldsen Kvartettinn byrjaði að spila og voru þeir með stórskemmtilegt prógram. Það var líka gaman að sjá hvað áheyrendur tóku þeim vel og ég held að sveitin hafi komið þægilega á óvart. Oddmund bassaleikari uppskar hróp og köll eftir flest sóló sín enda mikill snillingur þar á ferð. Þegar félagarnir frá Sortland höfðu lokið leik var komið að Mezzoforte. Það var mikil eftirvænting í salnum og frábær stemning. Þeir léku öll sín þekktustu lög og hver sem skoðun manns er á tónlistinni sem slíkri var ekki annað hægt enn að hrífast með. Jón Skuggi sá um að hljóðið var frábært og hljómsveitin sá um rest. Þeir voru gríðarlega þéttir og vel æfðir, hvergi veikan blett að finna á hljómsveitinni. Ég held að ég tali fyrir hönd allra gesta Egilsbúðar þetta kvöld. Þetta voru stórkostlegir tónleikar!!! Ég vil að lokum þakka öllum þeim sem gerðu þessa hátíð að veruleika og þá helst þeim Einari Braga, Kristínu og Karen Erlu. Styrktaraðilar fá einnig bestu þakkir og kíktu á tengilinn “Styrktaraðilar” til að sjá hverjir styrktu okkur. Kær kveðja Jón Hilmar Kárason. P.s. fylgist með síðunni því að við munum setja inn myndir frá hátíðinni og hér færðu fyrstu fréttir af Jasshátíð Egilsstaða á Austurlandi 2007! 24.06.06 Hátíðin hefur gengið frábærlega það sem af er. Það hefur verið frábær mæting á þá viðburði sem búnir eru og gengur miðasala vel fyrir kvöldið. Ég hvet þig til að nálgast miða sem fyrst til að þurfa ekki að standa í biðröð í kvöld. Í gærkvöldi komu félagar okkar frá Sortlandi í Noregi og tóku þeir þátt í stórskemmtilegu jammsessioni eftir tónleikana í gær. Þar kom Árni Ísleifs og stjórnaði fyrstu atrennu en honum til fulltygis voru til dæmis Bjössi Thor og Sortland sveitin. Þar fór Oddmund bassaleikari á kostum og verður frábært að fá að heyra í þeim félögum í kvöld. Ég hlakka svakalega til að fá að heyra í einni af okkar bestu hljómsveitum í kvöld og til að hitta þig í Egilsbúð!!! 16.06.06 Það er búið að vera frábært veður hér á Austurlandi það sem af er sumri. Við gerum ráð fyrir því að það verði áframhald á því og því er ekki úr vegi að fjárfesta í samba og sól. Eyjólfur Þorleifsson gaf á dögunum út disk sem nefnist Tónar og mun hann ásamt hljómsveit sinni leika lög af þessum diski í Herðubreið Seyðisfirði á fimmtudag 22. júní. Þar er á ferð feikna skemmtileg plata sem fær þig til að yða og ef þú átt heima í Reykjavík þarftu bara að setja diskinn í, lygna aftur augunum og láta þig dreyma um sólríka stund á Austurlandi. Tilvalin plata til að hita upp fyrir Jasshátíðina. Svona út í búð!
14.06.06 Nú er rétt vika í Jasshátíð og allt að verða komið á hreint. Opnunarhátíðin á miðvikudagskvöld sem er í boði Landsbankanns verður á Hótel Héraði. Fyrir áhugasama er gaman að minnast á að Finn Sletten trimbill Bodö Rhythmn Group lék um tíma með hljómsveit Paul Weeden. Paul Weeden er íslendingum góðu kunnur því hann hefur margsinnis komið hingað til lands með gítarinn sinn og leikið af sinni alkunnu snilld. Í dag var dagskrá hátíðarinnar dreift í öll hús á Austurlandi með Dagsskránni og eru plaggöt komin upp víða. Það er einnig gaman að segja frá því að Árni Ísleifs mun koma og vera með okkur sem heiðursgestur hátíðarinnar. Það er mikil tilhlökkun í okkur fyrir austan og þetta verður þrumu hátíð. Láttu þig ekki vanta! Hafðu endilega samband ef þú vilt koma skoðunum á framfæri eða spurja um eitthvað varðandi hátíðina. Ég vil líka minna á að hægt er að panta miða hér á síðunni með því að senda tölvupóst.
06.06.06 Þeir félagar í Steinar Kjeldsen Kvartett léku “islands-programet” fyrir landa sína í síðustu viku. Þeir léku í Myre sem er 50 km frá Sortland. Að sögn lukkaðist vel og hlakkar þá félaga mikið til að spila fyrir okkur á Fróni. Þeir eiga að höndum mikið ferðalag og þurfa þeir að taka fjögur flug til þess að komast til Egilsstaða. Einnig er verið að skipuleggja Sortland Jazzveekend sem er jasshátíð næstum jafn gömul og okkar hátíð. Verður hún dagana 14 – 17 september. Félagarnir í Bodö bandinu eru ekki með tærnar uppí loft heldur því að bassaleikari þeirra hann Kjell Joar Petersen Øverleir var að leikar duet með Sigrid Brennhaug og voru dómarnir ekki af verri endanum. Æfið ykkur nú á norskuni. “Sigrid Brennhaug er bare bedre og bedre jo mindre besetning hun opptrer i. Jo mer rom hun får, jo mer tar hun det ut. Samspillet med Kjell Joar Petersen Øverleir var magisk fra første tone. En skulle tro at besetningen kontrabass og sang skulle bli litt tynt, og kanskje litt ensformig og kjedelig klangmessig. Ikke med disse to nei. Petersen Øverleir lager hele tiden fine kompbevegelser på bassen, og han er flink til å variere. Det blir et utmerket fundament for Brennhaug å briljere oppå. Hun på sin side har et ufattelig stemmeomfang som går over mange oktaver, og hun er i stand til å få musikken til å swinge helt alene.”(Rana Bladet)
02.06.06 Menn sitja ekki auðum höndum fram að J.E.A. Nú er Andrés Þór að gefa út geisladisk og halda útgáfutónleika í leiðninni. Björn Thoroddsen hefur verið að ferðast og er nú í París að leika jass fyrir Fransmennina. Mezzoforte eru á leið til Ungverjalands um miðjan mánuð til að hita upp fyrir J.E.A! Nýji diskurinn þeirra heitir Forward Motion og vil ég hvetja ykkur til að nálgast þessa diska fyrir hátíðina og komast í gírinn!
Nýr dagur – Andrés Þór Gunnlaugsson Geisladiskur og útgáfutónleikar Andrés Þór Gunnlaugsson hefur sent frá sér nýjan geisladisk með frumsaminni jazztónlist sem hefur hlotið nafnið Nýr dagur. Jazzkvartett Andrésar leikur á diskinum, en auk Andrésar sem leikur á gítar skipa kvartettinn Sigurður Flosason á altó saxófón, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Nýr dagur er fyrsti geisladiskur Andrésar í eigin nafni og eingöngu með frumsömdum verkum hans, en fyrir tveimur árum kom út diskurinn It was a very good year með Hollensk-íslenska tríóinu Wijnen, Winter & Thor. Á þeim diski var m.a. verkið Þórdísardans eftir Andrés, en það var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2004 sem jazztónsmíð ársins. Andrés Þór og jazzkvartett hans halda útgáfutónleika í Hafnarborg 7. júní kl. 21 á menningarhátíðinni Bjartir dagar í Hafnarfirði
01.06.06 Það styttist óðum í að 19.Jasshátíð Egilsstaða á Austurlandi hefjist. Undirbúningur hefur gengið ágætlega og kíkið endilega inn á “Styrktaraðilar” til að sjá hvaða fyrirtæki leggja metnað sinn í að halda elstu Jasshátíð Íslands gangandi! Það er búið að semja við flesta þá listamenn sem koma til okkar og er dagskráin orðin mjög spennandi. Í ár finna allir eitthvað við sitt hæfi því dagsskráin er mjög fjölþjóðleg og fjölbreytt. Við fáum íslenskan jass á Seyðisfirði þar sem nokkrir af okkar bestu jassleikurum koma fram og leika að miklum hluta frumsamda tónlist. Á föstudag verðum við á Eiðum og fáum við þá að hlýða á gítardúett, ungjass og norskt trío ásamt söngkonu. Svo loka snillingarnir í Mezzoforte dæminu í Egilsbúð Neskaupstað á laugardaginn ásamt annari norskri sveit.
|
|---|