Jasshátíð í 19 ár Tveir vinir, Steini Steingríms píanisti úr KK sextett og Árni Ísleifsson voru á rölti á góðviðrisdegi á Egilsstöðum árið 1987. Gellur þá í Steina: “Hér ætti að vera jass, hér er svo fallegt.” Árni tók hann á orðinu og fyrstu Jasshátíð Egilsstaða var hleypt af stokkunum á Jónsmessu 23. júní 1988, ári síðar. Jón Múli Árnason veitti hátíðinni brautargengi með setningarræðu og síðan var blásið til leiks af fullum krafti. Dagskrá þessarar fyrstu Jasshátíðar landsins leit svona út: Kvartett Tómasar R. Einarssonar
Kvintett Viðars Alfreðssonar og Jóns Páls Bjarnasonar
Á þessari fyrstu 3ja daga hátíð komu einnig fram Ullarbandið frá Neskaupstað, Bláa Blúsbandið frá Stöðvarfirði með Garðar Harðarson í broddi fylkingar. Dr Jekyll frá Egilsstöðum og Djassband Hornarfjarðar. Lokatónar voru úr barka og blúsgítar Guðgeirs Björnssonar. Margir heimsþekktir listamenn hafa leikið á hátíðinni í gegnum árin. Meðal þeirra eru:
Svend Asmundsen Finn Ziegler Peter Gullin Cecilia Wennerström Chicago Beau ofl.ofl Eftirfarandi stórsveitir hafa mætt: Stórsveit Reykjavíkur, Torshavnar Big Band, Stórsveit Húsavíkur, Stórsveit Akureyrar. Ýmsir hljóðfæraleikarar úr heimabyggð hafa myndað sveitir undir nafni Djasssmiðju Austurlands. Allir færustu jassarar landsinns hafa leikið á hátíðinni. Blússveitir á borð við Vini Dóra, Tregabandið, Blúsmenn Andreu og Blues&Brass og svona mætti lengi telja. Margir hafa lagt lóð á vogarskálarnar þó svo að Árni Ísleifs hafi haft veg og vanda að hátíðinni hingað til. Friðrik Theodórsson hefur verið kynnir á öllum hátíðunum að 3 undanskildum. Hann hefur sett góðan svip á hátíðirnar með rökvísi sinni og gáska. Einnig var Vernharður Linnet Árna innan handar með val á listamönnum. Nú er það svo að Árni lét gott heita eftir síðustu hátíð og lét hátíðina í hendur yngri manna. Þau Karen Erla Erlingsdóttir, Kristín Scheving, Einar Bragi Bragason og Jón Hilmar Kárason komu saman til að finna hátíðinni farveg og til að skipuleggja þá 19. í röðinni. Það var ákveðið strax að halda áfram þeirri stefnu sem Árni markaði á síðustu hátíð en þá voru tónleikar víðar um Austurland. Stórsveit Reykjavíkur og Langholtskórinn fluttu helgisöngva Ellingtons í Kirkju-og menningarmiðstöðinni á Eskifirði, en hátíðin í fyrra var einmitt tileinkuð Sir Duke. Hátíðin sem nú heitir Jasshátíð Egilsstaða á Austurlandi verður haldin á Egilsstöðum, Seyðisfirði og í Neskaupstað, Fjarðabyggð.
|
|---|