Sigurður Flosason

Sigurður Flosason (1964) hefur um árabil verið í hópi atkvæðamestu jazztónlistarmanna Íslands. Hann hefur leikið inn á fjölda geisladiska bæði með eigin tónsmíðum og annarra, hér á landi og erlendis. Sigurður lauk

einleikarprófi frá Tónlistarskólanum í Rvk. árið 1983. Hann stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum. Lauk Bachelors og Mastersprófum frá Indiana University og nam síðar hjá George Coleman í New York.

 Geisladiskar Sigurðar, alls 9 að tölu, spanna vítt tónlistarlegt svið. Hann hefur sent frá sér fjóra geisladiska í eigin nafni þar sem fengist er við

jazztónlist, bæði frumsamda og hefðbundnari "standarda". Þá hefur hann í samvinnu við Gunnar Gunnarsson organista gefið út þrjá geisladiska með

kirkjulegum spuna og íalsenskum ættjarðarlögum. Sigurður hefur einnig tekið þátt í framsæknum tilraunaverkefnum s.s. á nýjustu plötum sínum, en

þær eru "Stikur" (duo með Jóel Pálssyni, saxófónleikara) og "Raddir þjóðar" (duo með Pétri Grétarssyni slagverksleikara), en á þeirri síðastnefndu er unnið

úr hljóðrituðum söngarfi íslensku þjóðarinnar, m.a. með notkun á gömlum hljóðritum Árnastofnunar.

 

Sigurður hefur tvívegis hlotið íslensku tónlistarverðlaunin og tvisvar verið tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, árin 2000 og 2003. Hann

hlaut einnig, ásamt Gunnari Gunnarssyni, tilnefningu til tónlistarverðlauna DV árið 2001. Sigurður hlaut 1. verðlaun í bandarísku Hoagy Carmichael tónsmíðasamkeppninni 1987 og kvartett hans komst í úrslit í Europe Jazzkontest 1991. Sigurður hefur verið aðstoðarskólastjóri og yfirmaður

jazzdeildar Tónlistarskóla F.Í.H. frá 1989.

Mezzoforte

Bodö Rhythm Group

Steinar Kjelsen Kvartett

Jazzkvartett Andrésar

Stórsveit Eyjólfs Þorleifssonar

Björn Thoroddsen

So What!