Björn Thoroddsen

Björn Thoroddsen er án efa okkar þekktasti jassgítarleikari.  Hann hefur leikið á ýmsum hátíðum víða um heim og leikið með nokkrum heimsþekktum listamönnum eins og Niels-Henning Ørsted Petersen, Philip Catherine, Doug Raney, Jukka Lincola, Alex Riel. Deter Lockwood, Sylvain Luc, Jacob Fischer, Richard Gillis  og  Kristian Jörgensen og mörgum fleiri.  Einnig hefur sveit hans Guitar Islancio átt góðu gengi að fagna og fengu þeir félagar gullplötu fyrir 5000 diska sölu árið 2003.  Einnig hefur Björn Thoroddsen verið valin Jassflytjandi  ársinns árið 2003 á íslensku tónlistarverðlaununum  Á Jasshátíð Egilsstaða á Austurlandi kemur hann til með að leika dúett með austfirska gítarleikaranum Jóni Hilmari Kárasyni sem hefur starfað sem slíkur til fjölda ára.    

Mezzoforte

Bodö Rhythm Group

Steinar Kjelsen Kvartett

Jazzkvartett Andrésar

Stórsveit Eyjólfs Þorleifssonar

Sigurður Flosason

So What!