Jazzkvartett Andrésar Hljómsveitin Jazzkvartett Andrésar er stofnuð af Andrési Þór gítarleikara og samanstendur af nokkrum af okkar helstu jazztónlistarmönnum. Kvartettinn leikur að mestu leyti tónlist eftir hljómsveitarstjórann og Vernharður Linnet lét hafa eftir sér í dómi sínum í morgunblaðinu “Þetta voru dúndurtónleikar. Andrés er metnaðarfullur tónlistarmaður sem vinnur heill að list sinni og er skemmtilega fjölbreyttur í spuna sínum, kvartettinn small vel saman og þegar best lét var djasslistin tær og hrein.” Andrési efur einnig hlotnast sá heiður að leika með Ameríska tenórsaxafónleikaranum Michael Brecker ásamt The Royal Conservatory Big Band í Ráðhúsi Den Haag borgar mðal annars. Sigurð Flosason þarf vart að kynna en hann er einn okkar besti tónlistarmaður. Hann hefur tvívegis hlotið íslensku tónlistarverðlaunin og tvisvar verið tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, árin 2000 og 2003. Kvartettinn skipa þeir: Anrés Þór - gítar Sigurður Flosason - sax Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson - bassi Scott McLemore - trommur
|
|---|