Steinar Kjeldsen Kvartett

Vinir okkar frá Noregi koma og heiðra okkur með nærveru sinni.  Steinar Kjeldsen Kvartett er frá Vesteralen sem er norðarlega í Noregi.  Jón Hilmar og Einar Bragi fóru til Noregs í haust og kynntust þeir þessum fínu tónlistarmönnum í þeirri ferð.

Steinar Kjeldsen Kvartett er skipaður þeim:

Steinar Kjeldsen - pianó

Oddmund Finnseth - bassi og söngur

Tim Challman – sax og flauta

Jan Olsen – trommur

Kvartettinn spilar jasstónlist úr öllum áttum.  Á hátíðinni verða þeir félagar með gesta gítarista Arne Strømsnes og leika jassættað rokk og fusion í bland við aðrar stefnur.

Þeir Jón Hilmar og Einar Bragi lásu grein um bassaleikara sveitarinnar Oddmund Finnseth í heimsókn þeirra síðasliðið haust og er hann ekki bara þekktur sem þrusu bassaleikari heldur hefur hann afrekað það að skjóta þrjá elgi á aðeins 20 sec.  Hann skattar líka eins og andsk...

Steinar sjálfur er formaður Sortland jass og viseklubb en þeir halda hátíð sem er nærri því jafn gömul og okkar hátíð – takið eftir nærri því!

Það verður því spennandi að heyra hvað þessir norsku vinir okkar bjóða uppá og munu þeir leika á undan Mezzoforte.

Mezzoforte

Bodö Rhythm Group

Jazzkvartett Andrésar

Stórsveit Eyjólfs Þorleifssonar

Björn Thoroddsen

Sigurður Flosason

So What!