Stórhljómsveit Eyjólfs Þorleifssonar

Hljómsveitin leikur hressandi og skemmtilega tónlist af hljómdiskinum Tónar. Tónar er diskur sem kom út síðla árs 2005 og inniheldur frumsamda tónlist eftir saxófónleikarann og lagahöfundinn Eyjólf Þorleifsson. Tónlistin er sungin og instrumental í bland og er mestan part í Suður-Amerískum stíl. Allir textar koma úr smiðju Braga Valdimars Skúlasonar. Bragi er örugglega mörgum kunnur sem ein af aðalsprautum Baggalúts og er þegar kominn í hóp þekktustu textahöfunda Íslendinga í dag. Tónlistin hefur hvarvetna fengið frábærar viðtökur og var meðal annars tilnefnd til Íslenku tónlistarverðlaunanna 2005.

Hljómsveitina skipa þau:

Eyjólfur Þorleifsson - tenór saxófónn

Sigtryggur Baldursson - slagverk og söngur

Hildur Guðný Þórhallsdóttir - söngur

Pétur Grétarsson- trommur

Ástvaldur Traustason- píanó, Rhodes og Hammond orgel

Ómar Guðjónsson - gítar

Kjartan Hákonarson - trompet og flugelhorn

Tómas R. Einarsson - kontrabassi

Mezzoforte

Bodö Rhythm Group

Steinar Kjelsen Kvartett

Jazzkvartett Andrésar

Björn Thoroddsen

Sigurður Flosason

So What!